Hæjó...
Ég HATA tónfræði! ég hata hana! Ég fór í tónfræði í kvöld og þá
segir kennarinn ,,uuu já nú erum við að fara að læra sönglestur" Og
vitið þið hvað það er? já mikið rétt! það er söngur! HALLÓ! við
erum í TÓNFRÆÐI! En nei þetta er víst ekki það sama og söngur! Nú
hvað er það þá? ,,þett er bara lestur nótna með hljóði" og bíddu er
það ekki söngur? ,,nei nei það er ekki það sama" En samt erum við
að syngja! hann spilar nótu og við eigum að raula hana alveg eins
og segja do, re, mí...eitthvað svoleiðis bull! ...og bíddu, er það
ekki söngur eða?...,,nei alls ekki það sama" !!!...vá hvað ég get
pirrað mig á þessu!
En það er allt brjálað að gera í leik og dansæfingum...reyndar
var ekkert í dag..en það var samt eitthvað verið að undirbúa sviðið
og leikmyndina og eitthvað svoleiðis...svo á morgun er dansæfing og
svo bara stanslausar æfingar eftir það...þetta verður rosa
flott...og ALLIR að koma á sýninguna 23 mars
og svo eru auðvitað
fleiri eftir hana svo þið sem ekki komist 23 komið þá bara
seinna
Svo er það gettu betur á morgun....Fsu mun keppa við
veslinga...(vesalinga)hehe...munum við vinna? ég veit ekki? en ég
vona það bara
Jæja...segjum þetta bara gott í bili
K.O.M.M.E.N.N.T.A...Svo